spot_img
HomeFréttirMiðasala hafin á leik Íslands gegn Hollandi - Takmarkað magn miða í...

Miðasala hafin á leik Íslands gegn Hollandi – Takmarkað magn miða í boði

Lokaleikur Íslands í fyrri umferð undankeppni HM 2023 fer fram 1. júlí kl. 20:00 er liðið tekur á móti Hollandi í Ólafssal í Hafnarfirði. Bæði lið eru komin áfram í næstu umferð en hér skiptir miklu máli að taka sem flesta sigra með sér áfram. Síðast lék íslenska liðið tvívegis við Ítalíu í febrúar, fyrst í Ólafssal fyrir troðfullu húsi þar sem sigur hafðist í tvíframlengdum leik eins og frægt er, og svo hafði Ítalía sigur ytra í Bologna í seinni leiknum.

Nýlega var Rússlandi meinuð frekari þátttaka í mótum FIBA og því fara öll þrjú liðin áfram eins og áður segir í aðra umferð. Þar sameinast tveir og tveir riðlar í sex liða riðla og mun riðill okkar sameinast við G-riðil en þar eru Spánn, Úkraína, Georgía og Norður-Makedónía liðin sem þar eru. Þá verður leikið gegn þessum nýju liðum heima og að heiman í þrem gluggum í ágúst og nóvember 2022 og febrúar 2023. Þrjú efstu liðin í þessum sameinaða riðli fara á lokamót HM sem fram fer sumarið 2023 í Japan, Indónesíu og á Filipseyjum.

Miðasala er hafin á Stubb, en tekið er fram að takmarkað magn miða verður í boði á leikinn. Miðaverð fyrir fullorðna er 2500 kr. á meðan að 15 ára og yngri þurfa að greiða 1000 kr. fyrir miða. KKÍ-aðgöngukort gilda ekki á leikinn!

Allar nánari upplýsingar er að finna hér

Hérna er heimasíða undankeppninnar

Fréttir
- Auglýsing -