“Hann er gríðarlega sterkbyggður og mun án efa gleðja augað enda er sprengikrafturinn svakalegur. Ég vona að körfurnar í Ljónagryfjunni muni halda þegar þessi massaði skrokkur fer í háloftin. Hann hefur nú þegar fengið viðurnefnið “Moby Dick” hjá okkur strákunum”. segir Gunnar Örlygsson formaður kkd. UMFN um nýjan erlendan leikmann þeirra Njarðvíkinga sem mun koma eftir áramót og spila með þeim grænklæddu í Ljónagryfjunni.
Craig sýnist á öllu vera þessi týpiski "undersized" framherji en hann er 195 cm að hæð og heil 110 kílógröm. Craig spilaði með Southern Missisippi háskólanum og er fæddur árið 1991. Á síðasta ári sínu í skólanum skilaði hann 12 stigum og 7 fráköstum á leik og var valinn í All tournement Team.