spot_img
HomeFréttirMiami tapar fjórða í röð: Strákarnir hans Jordans unnu í Vindaborginni

Miami tapar fjórða í röð: Strákarnir hans Jordans unnu í Vindaborginni

 
Tveir leikir fóru fram í NBA deildinnni í nótt þar sem Miami Heat tapaði sínum fjórða leik í röð og að þessu sinni á heimavelli. Þá gerðu strákarnir hans Michael Jordans góða verð í Vindaborgina Chicago og lögðu gamla lið meistarans að velli. 
Miami 89-93 Atlanta
Framlengja varð viðureign liðanna í nótt en Heat léku án Chris Bosh sem er meiddur á ökkla. Í stöðunni 77-77 fékk LeBron James tækifæri til þess að gera út um leikinn og setti kauði upp þriggja stiga skot sem fór víðsfjarri og því varð að framlengja. Þegar sex sekúndur voru eftir af framlengingunni leiddu Hawks 91-89. LeBron James vippaði sér þá upp í annan dreifbýlisþrist sem vildi ekki niður og gestirnir kláruðu leikinn á vítalínunni.
Fimm leikmenn Hawks gerðu 11 stig eða meira í leiknum en tveir voru með 19 stig, þeir Joe Johnson sem einnig var með 10 stoðsendingar og Jamal Crawford sem kom inn af bekknum. Hjá Heat var LeBron ekki fjarri þrennunni með 34 stig, 10 fráköst og 7 stoðsendingar en kappinn hefur oft verið með betri nýtingu, 11/30 í teignum og 2/10 í þriggja. Dwyane Wade bætti svo við 27 stigum.
 
Chicago 82-83 Charlotte
Fyrir leikinn í nótt höfðu Bulls unnið átta heimaleiki í röð en sá níundi átti ekki að finnast að þessu sinni. Derrick Rose fékk að sjálfsögðu lokaskotið fyrir Bulls en það geigaði og Bobcats fögnuðu sigri. Dj Augustin var stigahæstur í liði Bobcats með 15 stig en hjá Bulls var Derrick Rose með 33 stig.
 
Mynd/ Joe Johnson og félagar í Hawks gerðu góða ferð suður til Miami í nótt.
 
Fréttir
- Auglýsing -