Sjö leikir fóru fram í NBA deildinni í nótt þar sem Cleveland Cavaliers tapaði sínum tuttugasta og fyrsta deildarleik í röð. Liðsmenn Cleveland voru að þessu sinni á heimavelli Miami Heat og máttu þola 117-90 ósigur. Með ósigrinum heldur Cleveland áfram að hlaða upp á einhverja verstu taphrynu síðustu ára í NBA deildinni.
Dwyane Wade fór mikinn hjá Miami með 34 stig, 7 fráköst og 5 stoðsendingar og LeBron James bætti við 24 stigum og 8 stoðsendingum. Hjá Cleveland var Antawn Jamison með 21 stig og 10 fráköst.
Miami er nú í 2. sæti austurstrandarinnar með 71% sigurhlutfall en Cleveland er á botninum með 17% sigurhlutfall, hafa unnið 8 leiki og tapað 40.
Önnur úrslit næturinnar:
Indiana 104-93 Toronto
New Jersey 115-99 Denver
Memphis 100-97 Orlando
Dallas 102-92 Washington
Utah 83-78 Charlotte
LA Clippers 105-98 Milwaukee
Mynd/ Wade setti 34 á heimavelli í nótt




