Það var boðið upp á sannkallaðan erkifjendaslag þegar Reykjavíkurliðin KR og Valur mættust í Frostaskjólinu. Bæði lið voru jöfn með 8 stig eftir 7 umferðir fyrir þessa umferð og því mátti búast við hörkuleik, KR hafa tapað þremur leikjum í vetur og hafa þessir tapleikir komið í síðustu fjórum leikjum.
Valur hefur aftur á móti unnið 3 af síðustu fjórum leikjum. Leikurinn var í járnum allan leikinn, það var ekki fyrr en í 4. leikhluta að Kári mætti og sá til þess að Valur fór með öll stigin, Valur vann 91-99.
Karfan spjallaði við Finn Frey Stefánsson þjálfara Vals eftir leik á Meistaravöllum, en um árabil þjálfaði hann einmitt lið heimamanna í KR.



