Menn hamast í Kjartani Atla Kjartanssyni á Twitter í kvöld því hann átti langan dag í dag þegar KV mætti Keflavík í 32 liða úrslitum Poweradebikarsins. Keflvíkingar unnu leikinn 56-136 og sigldu því auðveldlega áfram í 16 liða úrslit.
(Myndasafn úr leiknum eftir Tomasz Kolodziejski)
Í liði KV lék Kjartan Atli sem einnig er þáttarstjórnandi í hinum frábæra þætti Körfuboltakvöld. Einn af liðum körfuboltakvölds er þrennuveggurinn og vilja sumir spekingarnir á Twitter meina að þar ætti Kjartan Atli heima eftir daginn því hann gerði 15 stig í leiknum, tók 10 fráköst og … tapaði 10 boltum. Sjá kyndingaflauminn hér að neðan sem Viðar Örn Hafsteinsson þjálfari Hattar byrjaði:
@kjartansson4 með triple double í dag. 15 stig, 10 fráköst og 10 tapaðir boltar. #tilboðfrahettiáborðinu #korfubolti
— Vidar Hafsteinsson (@vidarhafsteins) November 1, 2015
@vidarhafsteins @HemmiHauks @kjartansson4 mínus 66 í +/- tölfræði…..það er sérveggur!!! #epic
— Hrafn Kristjánsson (@ravenk72) November 1, 2015
@ravenk72 @vidarhafsteins @HemmiHauks strákar. Sá hlær best sem síðast hlær. _x1f602_
— Kjartan A Kjartanss. (@kjartansson4) November 1, 2015
@kjartansson4 @vidarhafsteins @HemmiHauks Shit Viðar….við vorum að pota í ljónið sem leikgreinir okkur vikulega :-D!!
— Hrafn Kristjánsson (@ravenk72) November 1, 2015
@ravenk72 @kjartansson4 @vidarhafsteins @HemmiHauks kjartan fer á wall of shame (staðfest) og hann ræður engu um það ;D
— Garðar Örn Arnarson (@gardarorn23) November 1, 2015
@gardarorn23 @ravenk72 @kjartansson4 @HemmiHauks ánægður með það. Wall of shame og væri gaman að sjá Fannar skammar á 10 TO
— Vidar Hafsteinsson (@vidarhafsteins) November 1, 2015
@vidarhafsteins @gardarorn23 @ravenk72 @HemmiHauks Viðar. Nú segi ég stopp _x1f648_
— Kjartan A Kjartanss. (@kjartansson4) November 1, 2015
Hverju sé ég mest eftir í dag? Jú, að hafa spilað gegn Keflavík. #publicshaming
— Kjartan A Kjartanss. (@kjartansson4) November 1, 2015