HomeFréttirMeistararnir niðurlægðir! (Uppfært)

Meistararnir niðurlægðir! (Uppfært)

Það fór lítið fyrir gestrisni þegar topplið Keflavíkur mætti í Ljónagryfjuna í kvöld. Skemmst frá því að segja þá niðurlægðu heimasæturnar í Njarðvík granna sína með 41 stigs mun, 94:53. Njarðvíkurstúlkur voru betri aðilinn allan leikinn og alltaf skrefi á undan og unnu leikinn verðskuldað. 
Njarðvíkurstúlkur komust strax yfir eftir fyrstu sókn og létu forystuna aldrei af hendi eftir það. Byrjun þeirra var reyndar hreint út sagt lygileg gegn efsta liði deildarinnar því þær komust í 12:0 og það var ekki fyrr en að rúmlega þrjár mínútur voru liðnar af leiknum að Jaleesa Butler skoraði fyrstu körfu Keflavíkur.  Þessi byrjun Njarðvíkur var eins og blaut tuska í andlitið á þeim keflvísku en þær komu sér með herkjum aftur inn í leikinn og náðu að minnka muninn niður í 4 stig. 
 
Þar með bjuggust líkast til flestir við því að nú færi í gang hörku leikur og að Keflavík myndi þá í kjölfarið koma sér í "bílstjórasætið" eins og oft er sagt. En það gerðist hinsvegar ekki, Njarðvík hamraði stálið meðan það var heitt og héldu áfram með frábæra baráttu og góða vörn gegn afar döpru liði Keflavíkur.  Miklu munaði um Jaleesu Butler en hún skoraði aðeins 5 stig í leiknum og það er allt of lítið frá þessum frábæra leikmanni. Njarðvík hélt til leikhlés með 12 stiga forystu og lítið benti til þess að Keflavík ætlaði sér eitthvað þennan daginn. 
 
Og það kom á daginn að Keflavík átti bara aldrei möguleika í þessum leik. Baráttan og leikgleðin hjá Njarðvík hélt áfram eftir leikhlé og þegar komið var í fjórða leikhluta þá gersamlega kafsilgdu þær meistarana úr Keflavík og endaði leikurinn í 41 stigs sigri Njarðvíkur, 94:53. 
 
Hjá Njarðvík voru Lele Hardy og Shanae Baker í aðalhlutverki og áttu glimmrandi leik á báðum enda vallarins. Lele var að sýna gríðarlega flotta takta á tímum þegar hún hreinlega fíflaði vörn Keflavíkur. Petrúnella Skúladóttir er einnig að spila gríðarlega vel þessa daganna fyrir Njarðvík og vissulega góður liðsstyrkur fyrir þær að fá hana.  Aðrar góðar fréttir fyrir Njarðvík er að hin unga Ína María Einarsdóttir styrkir hún enn frekar góðan hóp. 
 
Erfitt er að taka einhverja úr Keflavíkurliðinu og tala um sem þeirra besta mann í þessum leik. Pálína Gunnlaugsdóttir sýndi á tímum fína baráttu og virtist vera sú eina sem vildi spila körfuknattleik þetta kvöldið. En stærra framlag þurfti frá öðrum máttarstólpum liðsins til að þær hefðu átt einhvern möguleika þetta kvöldið. 
 
Viðtöl við þjálfara beggja liða munu birtast á Karfan TV á morgun. 
Fréttir
- Auglýsing -