Grindavík mætti Snæfell í Dominos deild kvenna í kvöld. Ekki var vitað hvoru megin sigurinn myndi falla þar sem Snæfell eru orðnar kanalausar og gengi Grindavíkur hefur ekki verið gott. Eftir leikinn er Grindavík því í 6.-7. sæti deildarinnar ásamt Haukum á meðan að Snæfell er í 2.-3. sæti ásamt Skallagrím.
Þáttaskil
Grindavík byrjaði sterkt í fyrsta leikhluta leiksins (25-10) en Snæfell kom sterkt til baka í öðrum leikhluta og var staða leiksins 30 – 25 í hálfleik Grindavík í vil. Snæfell byrjaði að pressa í öðrum leikhluta og fóru niður í svæðisvörn sem hjálpaði þeim að höggva á forskot Grindvíkinga og komast yfir. Snæfell var yfir þar til á loka sekúndunum þegar Ashley Grimes í Grindavík setti niður þriggja stiga körfu þrátt fyrir að Snæfell lá í henni. Eftir venjulegan leiktíma var staðan 58-58. Framlengingin var jöfn en Grindavík tókst að sigra leikinn 69 – 66.
Hetjan
Ashley Grimes kom sterk inn þegar að Grindavíkurstúlkur þurftu á henni að halda og skoraði 19 stig samtals í síðasta leikhluta leiksins ásamt framlengingu. Þá skoraði hún körfuna sem gerði það að verkum að þær tryggðu sér framlengingu.
Kjarninn
Grindvík hefði átt að vera búið að tryggja sér sigur eftir fyrsta leikhluta leiksins en Snæfell kom sterkt til baka með pressu og svæðisvörn. Þrátt fyrir að vera kanalausar náði Snæfell að vera yfir meirihluta leiks.
Umfjöllun / Jenný Ósk Óskarsdóttir
Mynd / Bára Dröfn Kristinsdóttir




