Þrír leikir fara fram í Dominos deild karla í dag. Helstan ber þar að nefna leik Hauka og KR, en það eru einmitt liðin sem að mættust í úrslitum síðasta árs. Gengi liðanna í deildinni til þessa mjög ólíkt, þar sem að KR trónir á toppi deildarinnar ásamt Stjörnunni á meðan að Haukar eru í 8.-11. sæti. Leikurinn fer fram að Ásvöllum í Hafnarfirði kl. 19:15.
Leikir dagsins:
Dominos deild karla
Haukar KR – kl. 19:15
Þór Þ. Snæfell – kl. 19:15
Stjarnan Keflavík – kl. 20:00 – í beinni útsendingu Stöð 2 Sport
1. deild kvenna
KR Fjölnir – kl. 17:30 – í beinni útsendingu hjá KR Tv
1. deild karla
Ármann ÍA – kl. 19:15
Valur Hamar – 19:30
2. deild karla
Hrunamenn/Laugdælir Reynir S. – kl. 19:15




