Matthías Orri Sigurðarson hefur verið á meðal fremstu yngri flokka leikmanna hérlendis síðustu tímabil en hann verður í Birmingham, Alabama í Bandaríkjunum í vetur þar sem hann mun leika í High School eða miðskóla. Elvar Friðriksson félagi Matthíasar úr yngri landsliðum Íslands heimsótti hann á dögunum og fóru strákarnir í ,,pick-up“ bolta eða opinn sal þar sem menn koma úr öllum áttum og skipa sér í lið og spreyta sig á parketinu.
Bakvörðurinn Eric Bledsoe hjá LA Clippers dúkkaði upp þennan daginn sem Matthías og Elvar ákváðu að skella sér í bolta. Íslendingarnir tóku vitaskuld hressilega á því og sýndu NBA kappanum hvar Davíð keypti ölið.
Matthías hefur leikið með KR-ingum í yngri flokkum og verður stórt skarð að fylla í fjarveru hans á meðan hann spreytir sig í henni stóru Ameríku.
Mynd/ Sigurður Hjörleifsson: Elvar og Matthías ásamt NBA leikmanninum Eric Bledsoe.




