Landsliðsmaðurinn Styrmir Snær Þrastarson og samherjar hans í Zamora áttu erfiðan dag í Primera FEB deildinni á Spáni í dag. Liðið fékk Gipizkoa í heimsókn en gestirnir reyndust mun sterkari og fóru með sigur af hólmi, 70–101.
Styrmir Snær spilaði tæpar 19 mínútur í leiknum. Á þeim tíma skilaði hann þremur stigum, fjórum fráköstum og einni stoðsendingu.
Eftir ósigurinn situr Zamora í 12. sæti deildarinnar með 30 stig. Leyma Coruña vermir hins vegar efsta sætið með 41 stig þegar deildin færist nær lokakaflanum.




