spot_img
HomeFréttirMatti og Shaq á spjallinu um helgina

Matti og Shaq á spjallinu um helgina

,,Ég var sem sagt hjá Óskari Kristjáns KR-ing og vini í Orlando um helgina og fór með nokkrum vinum í verslunarmiðstöð hérna nálægt. Svo var ég að rölta frá bílnum yfir í verslunarmiðstöðina og sá þar risastóran mann láta taka myndir af sér og fattaði fljótlega að þetta var Shaq."
Matthías Orri Sigurðarson gerðist svo lukkurlegur að hitta sjálfan Shaq um helgina eða Shaquille O´Neal en Matthías er námsmaður í Bandaríkjunum og leikmaður hjá U18 ára landsliði Íslands og Flagler háskólanum. Shaq er fyrrum leikmaður Orlando Magic og LA Lakers og þarfnast vart nánari kynningar við svo Matthías var að vonum í sjöunda himni þegar hann hitti goðsögnina.
 
,,Að sjálfsögðu tók ég í höndina á honum og spjallaði aðeins við hann og fékk mynd. Ég var helvíti ,,starstruck" í smá tíma á eftir."
 
Mynd/ Úr einkasafni: Matthías Orri og Shaq í Orlando þessa helgina.
 
  
Fréttir
- Auglýsing -