Virginia Tech gerði góða ferð til Maryland á aðfararnótt föstudags og lagði heimamenn 74-57. Þetta var annar tapleikur Maryland í röð sem eru nú með einn sigur og þrjá tapleiki í hinum geysisterka ACC riðli.
Haukur lék í 7 mínútur í leiknum og skoraði 2 stig. Þá var hann einnig með 1 stoðsendingu og 1 frákast.
Á aðfararnótt fimmtudags unnu Helena Sverrisdóttir og TCU sinn sjöunda leik í röð þegar BYU skólinn kom í heimsókn. Lokatölur voru 54-51 TCU í vil. Helena lét vel að sér kveða í leiknum, var stigahæst með 16 stig, tók 6 fráköst, gaf 3 stoðsendingar og stal 2 boltum. Með sigrinum hefur TCU unnið fimm fyrstu leiki sína í Mountain West riðlinum og er eina taplausa lið riðilsins.
Mynd/ Haukur Helgi í leiknum gegn Virginia Tech




