Duke eru í fantaformi um þessar mundir og gerðu góða ferð til Maryland í nótt og skelltu heimamönnum 62-80. Haukur Helgi Pálsson lék í 11 mínútur í leiknum og skoraði 3 stig, tók 1 frákast og gaf 1 stoðsendingu. Jordan Williams var atkvæðamestur hjá Maryland með 20 stig og 10 fráköst en hjá Duke var Kyle Singler með 22 stig.
Eftir ósigurinn í nótt er Maryland með 50% vinningshlutfall í hinum geysisterka ACC riðli, 4 sigrar og 4 tapleikir. Næsti leikur Maryland er svo 5. febrúar á heimavelli gegn Wake Forest en í fyrri umferðinni hafði Maryland öruggan sigur gegn Wake Forest á útivelli.




