spot_img
HomeFréttirMartin stigahæstur allra í undankeppninni

Martin stigahæstur allra í undankeppninni

Íslenska landsliðinu tókst ekki að landa sigri í Helsinki í gær gegn sterku liði Finna og er því HM draumurinn úti. Íslenska liðið hitti afar illa fyrir utan þriggja stiga línuna og lenti í slæmum villuvandræðum rétt undir lok leiks sem gerði róðurinn enn þyngri.  91-77 tap því raunin og Ísland úr leik í undankeppni HM.

 

Martin Hermannsson var frábær í liði Íslands en hann fékk fimmtu villuna sína snemma í fjórða hluta og varð því að fara af velli með 13 stig og 5 stoðsendingar. Stigahæstur hjá Íslandi var Haukur Helgi Pálsson með 16 stig, hjá Finnum var það að sjálfsögðu enginn annar en leikmaður Chicago Bulls, Lauri Markkanen sem leiddi með 31 stig og 7 fráköst. 

 

Eftir riðlakeppni undankeppni Evrópu er Martin Hermannsson stigahæstur að meðaltali í leik af öllum leikmönnum. Martin er með 21,5 stig að meðaltali í sex leikjum og 3,7 stoðsendingar. Þá er hann einning næst framlagshæstur í keppninni með tuttugu framlagsstig í heildina. Einungis Rúmeninn Emanuel Cate er framlagshærri með 22,5 framlagsstig. 

 

Hlynur Bæringsson er í 5. sæti yfir leikmenn sem tóku flest fráköst í undankeppninni með 7,3 að meðaltali í leik en hann er einnig næstframlagshæstur í Íslenska liðinu. Ísland mun leika í forkeppni undankeppninni Eurobasket 2021 í september eftir tapið í gær. 

 

 
Fréttir
- Auglýsing -