Alba Berlín tók 1-0 forystu gegn Bamberg í undanúrslitum þýsku úrvalsdeildarinnar í körfubolta með öruggum 105-86 sigri.
Martin Hermannsson, sem var valinn mikilvægasti leikmaður átta liða úrslitanna, spilaði í sautján mínútur og skilaði níu stigum ásamt sex stoðsendingum. Liðin mætast að nýju á mánudagskvöldið, en þrjá sigra þarf til að komast áfram.




