Landsliðsmaðurinn Martin Hermannsson sneri aftur á gólfið í dag eftir sjö vikna fjarveru vegna þumalfingursmeiðsla. Hann lék í 14 mínútur og skilaði fimm stigum í öruggum 21 stigs útisigri Alba Berlin á Braunschweig. Sigurinn heldur Berlínarliðinu í öðru sæti þýsku deildarinnar, aðeins tveimur stigum á eftir toppliði Bayern.
Martin mættur aftur í sigurleik
Fréttir




