Slóvenía lagði Ísland í Katowice í dag í fjórða leik liðanna á lokamóti EuroBasket 2025, 79-87.
Slóvenía hefur því unnið tvo leiki á mótinu til þessa og eru öruggir áfram í 16 liða úrslitin á meðan Ísland leitar enn að fyrsta sigrinum.
Karfan spjallaði við Martin Hermannsson eftir leik í Spodek höllinni, en hann var frábær fyrir Ísland í kvöld með 22 stig og 6 stoðsendingar. Undir lok viðtalsins mærir Martin fyrirliða sinn Ægi Þór Steinarsson, sem var að leika leik númer 100 fyrir Ísland í kvöld og segir hann besta fyrirliða sem hann hafi haft á ferlinum.



