HomeÚti í heimiEvrópaMartin í úrvalsliðinu

Martin í úrvalsliðinu

Martin Hermannsson var valinn í fimm manna úrvalslið úrslitakeppninnar í Þýskalandi eftir að Alba Berlin tryggði sér meistaratitilinn með mögnuðum endurkomusigri gegn Bayern München í oddaleik á útivelli. Þýska deildin tilkynnti valið á miðlum sínum, en Alba á þrjá leikmenn í úrvalsliðinu á meðan Bæjarar eiga tvo. Þetta er fyrsti meistaratitill Martins með Berlínarliðinu síðan árið 2020.

Martin var sérstaklega öflugur í úrslitakeppninni þegar mest á reyndi og skilaði frábæru framlagi fyrir sitt lið. Hann spilaði tæpar 23 mínútur í leik og skilaði á þeim tíma 12 stigum og 6 stoðsendingum að meðaltali.

Fréttir
- Auglýsing -