HomeFréttirMartin geggjaður í naumu tapi gegn toppliðinu

Martin geggjaður í naumu tapi gegn toppliðinu

Martin Hermannsson leikmaður Chalons-Reims átti frábæran leik fyrir liðið í naumu tapi gegn toppliði frönsku úrvalsdeildarinnar Le Mans. 

 

Martin setti 20 stig og þrjár stoðsendingar á 31 mínútu í leiknum. Hann hitti frábærlega í leiknum eða úr átta af ellefu skotum sínum. Leikurinn var æsispennandi en Le Mans tryggði sigur í blálokin. 

 

Charlon-Reims er í fjórtánda sæti Pro A deildarinnar eftir 24 umferðir og orðið ansi langsótt að liðið nái í úrslitakeppni. Le Mans eru í öðru sæti, í mikilli baráttu við Monaco um toppsætið og eru liðin jöfn að stigum núna en Monaco á leik inni. 

 

Haukur Helgi Pálsson og félagar í Cholet mæta Levallois annað kvöld en þeir eru í þrettánda sæti deildarinnar. Það eru tíu leikir eftir í deildinni eftir þessa leiki, því nóg eftir og stutt á milli liða. 

 

 

Fréttir
- Auglýsing -