Alba Berlín mátti þola tap gegn Rasta Vechta í úrslitakeppninni í Þýskalandi þrátt fyrir stórkostlegan leik Martins Hermannssonar, sem var stigahæstur sinna manna með 19 stig. Martin fór hreinlega á kostum á þeim tæpu 26 mínútum sem hann spilaði, en hann stýrði sóknarleiknum frábærlega og bætti við fjórum stoðsendingum auk þess að taka eitt frákast.
Með þessum úrslitum er Rasta Vechta óvænt komið í 2:1 forystu í þessu einvígi átta liða úrslitanna, en þrjá sigra þarf til að komast áfram. Martin og félagar, sem enduðu í öðru sæti deildarinnar á meðan Vechta endaði í því sjöunda, eru því komnir með bakið upp við vegg og verða að vinna næsta leik til að halda lífi í einvíginu.




