Íslenska karlalandsliðið í körfuknattleik nýtur enn nærveru og reynslu fyrirliða síns, Ægis Þórs Steinarssonar, sem fylgir liðinu í komandi verkefnum þótt hann verði ekki með inn á vellinum. Ægir Þór varð fyrir slæmum meiðslum á olnboga síðasta vor og er enn á batavegi, en hann leggur sitt af mörkum utan vallar til að styðja við bakið á hópnum fyrir krefjandi leiki gegn Finnlandi og Serbíu.
Í fjarveru Ægis tók Martin Hermannsson við fyrirliðabandinu í síðasta verkefni og segir Ægir að Martin hafi leyst það hlutverk af mikilli prýði. Hann hefur sjálfur verið Martin til halds og trausts og leiðbeint honum í leiðtogahlutverkinu, en nánar er rætt við Ægi Þór um stöðuna og endurkomuna í viðtalinu í spilaranum hér að neðan.




