spot_img
HomeÚti í heimiEuroleagueMartin byrjaður að æfa aftur með Valencia

Martin byrjaður að æfa aftur með Valencia

Martin Hermannsson hefur loksins snúið aftur til æfinga hjá liði sínu Valencia Basket, en frá þessu var greint á twitter-síðu sem lætur sig málefni félagsins varða fyrr í dag.

Martin sleit krossbönd í apríl á síðasta ári, og hefur frá því unnið hörðum höndum að endurkomu sinni. Nú styttist vonandi í endurkomu kappans í keppnisleiki með liðinu, sem og með íslenska landsliðinu.

Fréttir
- Auglýsing -