HomeFréttirMars-fárið að hefjast!

Mars-fárið að hefjast!

Í gær var hinn árlegi „Selection-Sunday" í bandaríska NCAA-háskólaboltanum og því ljóst hvaða 68-lið etja kappi um titilinn í ár. Leikar hefjast á hinu hefðbundna umspili 8-liða um síðustu 4 sætin í 64-liða úrslitunum 13. og 14. mars. Keppnin hefst svo fyrir alvöru þann 15. mars.
Nóg verður um að vera og eru til að mynda heilir 17 leikir á dagskránni á fimmtudaginn og hefst fjörið kl. 16.15 að íslenskum tíma og stendur fram á nótt. 
Allir leikirnir í mótinu eru sýndir á netinu í opinni dagskrá og hægt er að nálgast útsendingarlink á heimasíðu mótsins á (http://www.ncaa.com/march-madness)
 
TOPP 10 skólarnir að mati blaðamanna  (sigrar-töp á tímabilinu fyrir aftan)
1 Kentucky 30-1
2 Syracuse 30-1
3 Kansas 26-5
4 North Carolina 27-4
5 Missouri 27-4
6 Duke 26-5
7 Ohio State 25-6
8 Michigan State 24-7
9 Marquette 25-6
10 Michigan 23-8
 
Karfan.is hvetur félagahópa til að taka sig saman í hópleiki þar sem hver og einn fyllir út sinn „rekka" og spáir fyrir um úrslit keppninnar. Hægt er að prenta út listann hérna
 
Fyrir áhugasama er hægt að ná í frítt forrit fyrir IOS tæki sem býður upp á alla mögulega og ómögulega tölfræði í beinni fyrir hvern leik og einnig er hægt að kaupa viðbót við það til að horfa á í beinar útsendingar líkt og er í boði fyrir tölvur.
 
(http://itunes.apple.com/us/app/ncaa-march-madness-live/id423246594?mt=8)
 
Fréttir
- Auglýsing -