10:00
{mosimage}
(María Ben Erlingsdóttir)
Landsliðsmiðherjinn María Ben Erlingsdóttir verður frá leik með háskólaliðinu UTPA næstu 6-10 vikurnar þar sem hún er með brákaða rist. María meiddist í körfuboltaleik með UTPA gegn Baylor á dögunum. María segir á blog síðu sinni hafa lent asnalega á löpinni og segist ennfremur súr yfir því að hafa misst af gullnu tækifæri til að sýna sig og sanna.
Frekari rannsókn á meiðslum Maríu leiddi það í ljós að hún er með brákaða rist. María kvaðst súr yfir meiðslunum enda langt og strangt undirbúningstímabil að baki og mikil samkeppni um stöður innan liðsins.



