spot_img
HomeFréttirMargrét Kara leikur ekki með Stjörnunni á næsta tímabili

Margrét Kara leikur ekki með Stjörnunni á næsta tímabili

 

Framherji Stjörnunnar og íslenska landsliðsins, Margrét Kara Sturludóttir, mun að öllum líkindum ekki spila neitt á næsta tímabili. Þær fregnir hafa nú fengist staðfestar að hún gangi með barni.

 

Margrét Kara snéri aftur í íslenskan körfubolta með látum á síðasta tímabili eftir tveggja ára fjarveru. Var hreint út sagt stórkostleg, með 11 stig, 13 fráköst og 4 stoðsendingar að meðaltali í leik, sem gáfu henni 17 framlagspunkta að meðaltali (6. hæsta í deildinni) fyrir nýliða Stjörnunnar. Spilamennskan var næg til þess að hún var valin aftur til þess að leika fyrir Íslands hönd.

 

Karfan.is óskar Margréti og hennar fjölskyldu til hamingju.

Fréttir
- Auglýsing -