spot_img
HomeLandsliðinEuroBasket 2025Margir spennandi leikir á dagskrá EuroBasket í dag þó ekki sé leikið...

Margir spennandi leikir á dagskrá EuroBasket í dag þó ekki sé leikið í Katowice

Eftir fyrstu þrjá leiki riðilsins í Katowice á fimmtudag og um helgina verður enginn leikur í Spodek höllinni í dag.

Öll sex lið riðilsins fá frídag, en á morgun mætir Ísland svo liði Slóveníu, Ísrael og Belgía eigast við og heimamenn í Póllandi taka á móti Frakklandi.

Margir spennandi leikir eru þó á dagskrá í dag í þeim riðlum sem leiknir eru í Tampere í Finnlandi og Limasol á Kýpur.

Hérna er hægt að sjá hvaða leikir eru í dag

Á dagskrá RÚV eru leikir í beinni útsendingu

Eistland Tyrkland – kl. 11:35 – RÚV

Portúgal Lettland – kl. 14:50 – RÚV

Tékkland Serbía – kl. 18:05 – RÚV2

Fréttir
- Auglýsing -