spot_img
HomeLandsliðinEuroBasket 2025Margir spennandi leikir á dagskrá EuroBasket í dag þó ekki sé leikið...

Margir spennandi leikir á dagskrá EuroBasket í dag þó ekki sé leikið í Katowice

Eftir fyrstu leiki riðilsins í Katowice í gær verður enginn leikur í Spodek höllinni í dag.

Öll sex lið riðilsins fá frídag, en á morgun mætir Ísland svo liði Belgíu, Frakkland og Slóvenía eigast við og heimamenn í Póllandi taka á móti Ísrael.

Næstu daga leikur Ísland svo ansi þétt. Gegn heimamönnum í Póllandi sunnudagskvöld, gegn Slóveníu á þriðjudag og svo er síðasti leikur riðlakeppninnar gegn Frakklandi komandi fimmtudag.

Margir spennandi leikir eru þó á dagskrá í dag í þeim riðlum sem leiknir eru í Tampere í Finnlandi og Limasol á Kýpur.

Hérna er hægt að sjá hvaða leikir eru í dag

Á dagskrá RÚV eru leikir í beinni útsendingu

Þýskaland Svíþjóð – kl. 10:20 – RÚV

Litháen Svartfjallaland – kl. 13:20 – RÚV

Portúgal Serbía – kl. 18:05 – RÚV2

Fréttir
- Auglýsing -