Höttur sótti Stjörnuna heim í kvöld í 2. umferð Bónus deildar karla. Leikurinn var mikilvægur fyrir bæði lið sem voru í leit að sínum fyrstu stigum á nýju keppnistímabili eftir töp í upphafsumferðinni.
Viðar Örn Hafsteinsson, þjálfari Hattar, ræddi við blaðamann í Garðabænum strax að leik loknum og fór yfir frammistöðu sinna manna.
Viðtalið við Viðar má sjá í heild sinni í spilaranum hér að neðan.




