HomeFréttirMarch Madness: UNC skriðu áfram eftir framlengingu

March Madness: UNC skriðu áfram eftir framlengingu

 North Carolina Tar Heels sluppu með skrekkinn í nótt þegar þeir sigruðu Ohio háskólan í 16 liða úrslitum í háskólaboltanum. Fyrir leik var það endanlega ljóst að Kendall Marshall leikstjórnandi þeirra myndi ekki vera með og því yrði róðurinn erfiður fyrir liðið enda Marshall búin að vera einn þeirra aðal maður í allan vetur. 73:65 var lokastaða leiksins eftir framlengingu og óhemju spennu undir lokin
 Það voru svo Kentucky sem sigruðu Indiana 102:90, líklega mesta skor í háskólaboltanum í vetur.  Baylor háskólin er komin áfram með sigri á Xavier 75:70.  Kansas sigruðu í hörkuleik gegn North Carolina State 60:57 en þar voru Kansas taldir töluvert sigurstranglegri. 
Fréttir
- Auglýsing -