Risinn Manute Bol, fyrrum leikmaður Washington Bullets, Golden State Warriors, Philadelphia 76ers og Miami Heat, er látinn 47 ára að aldri. Hann var einn skæðasti varnarmaður deildarinnar á þeim 10 árum sem hann lék í deildinni en mátti sín lítils gegn skæðum nýrnasjúkdómi og húðsýkingu sem hafði plagað hann að undanförnu.
Bol verður ekki bara minnst sem hávaxnasta leikmanns deildarinnar frá upphafi (231 sm á hæð), heldur var hann vel þokkaður af öllum þeim sem kynntust þessum hægláta manni og eftir að ferli hans lauk einbeitti hann sér að mannúðarstörfum í heimalandi sínu Súdan undir merkjum samtakanna Sudan Sunrise.Þar vann hann að því að koma á friði milli stríðandi fylkinga auk þess sem hann einbeitti sér að því að byggja upp skóla.
Það var hann einmitt að gera í síðasta mánuði þegar hann var beðinn um að vera lengur í landinu til að vekja athygli á kosningunum sem þar fóru fram. Þegar hann sneri aftur til Bandaríkjanna var hann orðinn afar þjakaður af húðsjúkdómi sem lagðist á munn hans þar sem hann kom varla niður matarbita svo dögum skipti.
Talið er að hann hafi smitast af sjúkdómnum við að taka nýrnalyf sem hann fékk í Súdan.
Bol lék í NBA frá 1985 til 1995 og var með 2,6 stig, 4,2 fráköst og 3,3 varin skot að meðaltali í leik á ferli sínum. Hann leiddi deildina tvisvar í vörðum skotum, 1985-86 og 1988-89, en átti líka til að setja 3ja stiga körfur, þar af hitti hann einu sinni úr sex af tólf 3ja stiga skotum í einum hálfleik.
Hans verður sárt saknað af þeim sem kynntust honum sem körfuknattleiksmanns, en enn frekar þeim sem hann hafði unnið sleitulaust fyrir í stríðshrjáðu landi sínu.



