spot_img
HomeFréttirMálþing yngri flokka hafið í Laugardal

Málþing yngri flokka hafið í Laugardal

Í morgun kl. 10 hófst málþing yngri flokka og mun það standa til kl. 14:00 í E-sal Íþróttamiðstöðvarinnar í Laugardal. Sýnt er beint frá málþinginu á SportTV.
 
 
Öllum sem áhuga hafa á málaflokknum er velkomið að mæta og taka þátt í umræðum og stefnumótun fyrir málaflokkinn. Þeir sem vilja geta sent spurningar inn á [email protected] og þeim verður varpað fram.
 
Bein útsendinga verður á SportTV.is frá þinginu.
 
Dagskrá málþingsins:
10:00: Hannes S. Jónsson, formaður KKÍ opnar málþingið
 
Eftirtaldir aðilar verða með 10-15 mínútna erindi:
Guðbjörg Norðfjörð, formaður Fræðslunefndar KKÍ
Ágúst S. Björgvinsson, reyndur yngri flokka þjálfari
Stefán Arnarson, reyndur yngri flokka þjálfari
Stefán Þór Borgþórsson, Mótastjóri KKÍ
Snorri Örn Arnaldsson, reyndur yngri flokka þjálfari
 
Að loknum erindum munu ofantaldir aðilar svara spurningum úr sal og þeim sem berast í gegnum tölvupóst.
 
Nokkrir umræðuhópar munu síðan ræða: leikreglur, mótafyrirkomulag, fjölda leikmanna, verðlaun, getuskiptingu og fleira.
 
Málþingið verður sent út beint á SportTv.is og verður hægt að senda fyrirspurnir á [email protected] á meðan á málþinginu stendur.
 
  
Fréttir
- Auglýsing -