spot_img
HomeFréttirMagnús Þór í Skallagrím

Magnús Þór í Skallagrím

 

Leikmaður Keflavíkur, hinn leikreyndi Magnús Þór Gunnarsson, hefur ákveðið að skipta um lið og spila fyrir Skallagrím á næsta tímabili. Þetta ku vera í annað skiptið sem að Magnús leikur fyrir liðið, en síðast var hann þar hluta af 2014-15 tímabilinu. Var hann þá með 15 stig, 3 fráköst og 3 stoðsendingar að meðaltali í 11 leikjum fyrir félagið.

 

Ljóst er að þarna er um mikla reynslu fyrir nýliða Skallagríms að ræða, en á ferli sínum hefur Magnús spilað yfir 500 leiki, 77 landsleiki og unnið 8 Íslands og bikarmeistaratitla.

 

Hérna er tilkynning Skallagríms:

 

Fréttir
- Auglýsing -