Magnús Gunnarsson er að segja skilið við körfuknattleikslið Njarðvíkur og er að skipta yfir í Keflavík. Magnús er þessa stundina á æfingu með Keflvíkingum í íþróttahúsinu við Sunnubraut. www.vf.is greinir frá.
Nýir þjálfarar, Einar Árni Jóhannsson og Friðrik Pétur Ragnarsson, tóku við Njarðvík nú í kvöld eftir að Sigurður Ingimundarson sagði sig frá þjálfun Njarðvíkur í gær.




