Magnús Þór Gunnarsson, einn af lykilmönnum meistaraflokks Keflavíkur í körfubolta hefur samið á ný við félagið. Hann skrifaði undir nýjan samning í gær og verður því í herbúðum liðsins þegar nýr bandarískur þjálfari tekur við liðinu síðla sumars. Víkurfréttir, www.vf.is greina frá.
Magnús Gunnarsson hefur verið ein aðal skytta liðsins í gegnum tíðina og var m.a. valinn í landsliðið fyrir smáþjóðaleikana fyrr í sumar.