Fjölnismenn hafa orðið fyrir enn einni blóðtökunni til viðbótar því nú hefur Ingvaldur Magni Hafsteinsson ákveðið að taka sér frí frá körfuboltanum. Magni vinnur vaktavinnu á Selfossi og körfuboltinn hentaði ekki nægilega vel með vinnunni að þessu sinni.
,,Maður útilokar ekkert með framtíðina en ég verð ekki með í vetur,“ sagði Magni í samtali við Karfan.is í dag. ,,Aldurinn er heldur ekkert farinn að segja til sín, ég er kornungur ennþá þrátt fyrir að leika með svona ungum og sprækum Fjölnismönnum,“ sagði Magni léttur á manninn.
,,Í vetur hentar þetta ekki nógu vel með vinnunni en ég er að vinna vaktavinnu á Selfossi svo þetta tvinnast ekki vel saman,“ sagði Magni en hvernig leist honum á framhaldið hjá Fjölni?
,,Þó það séu farnir þaðan tveir af máttarstólpum liðsins, Tómas og Ægir, er enn góður kjarni þarna og ungir strákar sem geta stigið upp í vetur. Þá er einnig vonandi að liðið verið heppið með erlenda leikmenn,“ sagði Magni sem hefur ekki síður verið máttarstólpi hjá Grafarvogsliðinu en hann gerði 12,6 stig og tók 5 fráköst að meðaltali í leik.
Mynd/ Magni í leik með Fjölni á síðasta tímabili.




