Jón Ágúst Eyjólfsson, leikmaður Stál-úlfs í 2. deild karla átti magnaða körfu í gær þegar Stál-úlfur heimsótti Laugdæli á „Vatnið.“ Þegar 3 sekúndur voru eftir af þriðja leikhluta tók Jón Ágúst frákast og brunaði upp völlinn:
Stál-úlfur mátti þó sætta sig við tap á „Vatninu“ 54-67 eftir framlengdan leik en Jón Ágúst var stigahæstur gestanna með 13 stig (4 þrista). Í liði Stál-úlfs spila Litháar búsettir hér á landi en þetta tímabilið bættust við tveir íslenskir leikmenn, þeir Jón Ágúst Eyjólfsson og Björgvin Ottósson en fyrsti Íslendingurinn til að leika með Stál-úlfi var Lúðvík Bjarnason tímabilið 2011-2012.
Algirdas Slapikas formaður Stál-úlfs sendi Karfan.is þessar upplýsingar sem og myndböndin en hér að neðan fer troðsla úr viðureign Stál-úlfs og Sindra í 2. deildinni og þær koma nú ekki margar troðslurnar í 2. deild…lendingin hefði mátt vera betri en vissulega hressandi tilþrif.




