HomeBónus deildinBónus deild karlaMætast kl. 16:30 á morgun

Mætast kl. 16:30 á morgun

Körfuknattleiksunnendur þurfa að bíða í tæpan sólarhring eftir viðureign Tindastóls og Álftaness í Bónus-deild karla. Til stóð að flauta til leiks á Sauðárkróki í kvöld, en vegna slæmrar veðurspár og ófærðar hefur verið tekin ákvörðun um að fresta leiknum.

Ástæðan er gul veðurviðvörun sem nú er í gildi fyrir bæði Vesturland og Norðurland vestra. Samkvæmt upplýsingum frá Veðurstofu Íslands er ferðaveður á þessum slóðum mjög varasamt og talið óforsvaranlegt að senda gestina úr Garðabænum yfir heiðar.

Nýr leiktími hefur þegar verið staðfestur. Liðin munu mætast í Síkinu á morgun, laugardag, og hefst leikurinn klukkan 16:30 ef veður leyfir.

Fréttir
- Auglýsing -