Í kvöld fer fram annar leikurinn í úrslitaeinvígi fyrstu deildar karla þegar Breiðablik tekur á móti Sindra í Smáranum. Leikurinn hefst klukkan 19:15 og er mikið undir fyrir bæði lið í baráttunni um sæti í efstu deild.
Sindramenn leiða einvígið eftir að hafa unnið fyrsta leikinn á Höfn og geta með sigri í kvöld komið sér í afar vænlega stöðu. Blikar þurfa hins vegar á sigri að halda á heimavelli til að jafna metin og tryggja að spennan haldist fram í næsta leik.
Leikur kvöldsins
Fyrsta deild karla – Úrslit
Breiðablik Sindri – kl. 19:15




