HomeFréttirMæta Nikola Jokic og félögum í kvöld

Mæta Nikola Jokic og félögum í kvöld

Íslenska karlalandsliðið í körfubolta mætir Serbíu í dag í fyrsta leik sínum í seinni hluta undankeppni heimsmeistaramótsins 2027. Leikurinn fer fram í Belgrade Arena í Belgrad og hefst klukkan 18:00 að íslenskum tíma, en hann verður í beinni útsendingu á RÚV.

Ísland leikur í sex liða J-riðli og er fyrir leikinn í fimmta sæti með þrjá sigra, þrjú töp og níu stig, jafnt Litháen að stigum. Serbía situr í þriðja sæti riðilsins með tíu stig eftir fjóra sigra og tvö töp. Á toppi riðilsins eru Tyrkir með fullt hús stiga, Ítalir eru í öðru sæti en Bosnía og Hersegóvína situr á botninum.

Verkefnið er krefjandi fyrir íslenska liðið gegn sterkum andstæðingum á þeirra heimavelli, en leikurinn í dag markar upphaf mikilvægs kafla í baráttunni um sæti á HM.

Fréttir
- Auglýsing -