HomeFréttirMaður nýtur þess að spila þessa leiki

Maður nýtur þess að spila þessa leiki

Íslenska karlalandsliðið mætir öflugu liði Tyrklands í Laugardalshöll í kvöld klukkan 19:30 í undankeppni HM 2027.

Leikurinn er seinni viðureign liðsins í þessum fyrsta landsliðsglugga keppninnar, en strákarnir okkar leita nú svara eftir tap gegn Serbíu í Belgrad fyrir helgi. Tyrkir mæta ósigraðir til leiks og sitja á toppi riðilsins, svo ljóst er að verkefnið í kvöld er krefjandi.

Rætt var við Martin Hermannsson, fyrirliða íslenska liðsins, á æfingu liðsins fyrir leikinn. Þar ræddi hann meðal annars leikinn úti í Serbíu, forréttindin sem felast í því að spila gegn stærstu körfuboltaþjóðum heims og hvaða möguleika hann telur íslenska liðið eiga gegn hinu sterka tyrkneska liði í kvöld.

Viðtalið við Martin má sjá í heild sinni í spilaranum hér að neðan.

Fréttir
- Auglýsing -