HomeBónus deildinBónus deild karlaLykilmenn áfram í Vesturbænum

Lykilmenn áfram í Vesturbænum

Jakob Örn Sigurðarson hefur skrifað undir nýjan þriggja ára samning sem þjálfari meistaraflokks karla hjá KR, en hann mun einnig gegna stöðu framkvæmdastjóra deildarinnar áfram. Jakob hefur stýrt liðinu í þrjú ár og náð góðum árangri, en undir hans stjórn vann KR bikarmeistaratitilinn síðasta vetur og tryggði sér sæti í úrslitakeppni Bónusdeildarinnar eftir að hafa komið liðinu upp úr 1. deild.

Þá hefur Lettinn Linards Jaunzems einnig framlengt samning sinn við félagið eftir framúrskarandi tímabil. Jaunzems var valinn besti erlendi leikmaður deildarinnar í vetur með yfir 22 stig að meðaltali í leik og var lykilmaður í bikarsigri liðsins þar sem hann var valinn maður úrslitaleiksins. Hann kveðst í tilkynningu vera mjög hamingjusamur í Vesturbænum og stefnir á að vinna Íslandsmeistaratitilinn með félaginu.

Forráðamenn KR fagna þessum tíðindum og telja þá Jakob og Linards gríðarlega mikilvæga fyrir framtíðarsýn félagsins. Jakob leggur áherslu á að Jaunzems og Þórir Þorbjarnarson myndi eitt sterkasta tvíeyki landsins og séu kjörinn grunnur til að byggja ofan á. Frekari frétta af leikmannamálum í Vesturbænum er að vænta á næstunni.

Mynd / Gunnar Sverrisson

Fréttir
- Auglýsing -