Aga- og úrskurðanefnd hefur komist að miðurstöðu í máli leikmanns Grindavíkur DeAndre Kane, en hann var á dögunum rekinn út úr húsi í öruggum sigri liðsins gegn nýliðum ÍA í Grindavík.
Úrskurðinn má lesa hér fyrir neðan, en í honum er DeAndre látinn sæta 15 þúsund króna sekt.
Agamál 09/2025-2026
Með vísan til ákvæðis a. liðar 1. mgr. 13. gr. reglugerðar um aga- og úrskurðarmál skal hinn kærði, DeAndre Kane, leikmaður Grindavíkur, sæta 15.000 króna sekt vegna háttsemi sinnar í leik Grindavík gegn ÍA, sem fram fór þann 9 október 2025.



