Lykilleikmaður 5. umferðar Dominos deildar kvenna er leikmaður Keflavíkur, Thelma Dís Ágústsdóttir. Í mjög jöfnu Keflavíkurliði var hún besti leikmaður liðsins í sigri þess á Njarðvík í Ljónagryfjunni. Hún skoraði 11 stig, tók 9 fráköst, gaf 5 stoðsendingar, stal 2 boltum og varði 2 skot á þeim 33 mínútum sem hún spilaði í leiknum.
Einnig var Mia Loyd tilnefnd fyrir frammistöðu sína fyrir Val gegn Grindavík, Jóhanna Björk fyrir frammistöðu sína fyrir Skallagrím gegn Haukum og Gunnhildur Gunnars fyrir frammistöðu sína fyrir Snæfell gegn Stjörnunni.
Lykilleikmaður 5. umferðar?
M. Lloyd: Valur – Gri.
Jóhanna Björk: Skall. – Haukar
Gunnhildur: Snæfell – Stj.
Thelma Dís: Nja. – Kef.— Karfan.is (@Karfan_is) October 23, 2016




