Lykilleikmaður fimmtu umferðar Bónus deildar kvenna var leikmaður Stjörnunnar Shaiquel Mcgruder.
Í gífurlega sterkum heimasigri Stjörnunnar gegn Keflavík var Shaiquel besti leikmaður vallarins. Á um 35 mínútum spiluðum skilaði hún 27 stigum, 10 fráköstum, stoðsendingu, 2 stolnum boltum og vörðu skoti. Þá var hún nokkuð skilvirk í leiknum, með 70% heildarskotnýtingu, enga tapaða bolta og 35 framlagsstig fyrir frammistöðuna.

Lykilleikmenn:
- umferð – Rebekka Rut Steingrímsdóttir / KR
- umferð – Thelma Dís Ágústsdóttir / Keflavík
- umferð – Þóranna Kika Hodge Carr / Valur
- umferð – Rebekka Rut Steingrímsdóttir / KR
- umferð – Shaiquel Mcgruder / Stjarnan



