spot_img

Lykill: Sanja Orazovic

Lykilleikmaður fimmtu umferðar Dominos deildar kvenna var leikmaður KR, Sanja Orazovic.

Í góðum 57-81 sigri KR á Snæfelli í Stykkishólmi var Orazovic besti leikmaður vallarins. Á 29 mínútum spiluðum skilaði hún 24 stigum, 8 fráköstum, 2 stoðsendingum og 2 stolnum boltum. Þá var nýting hennar úr djúpinu til fyrirmyndar, þaðan setti hún 4 af 8 skotum sínum, eða 50%.

Lykilleikmenn umferða:

  1. umferð – Kiana Johnson (Valur)
  2. umferð – Daniela Wallen Morillo (Keflavík)
  3. umferð – Þóra Kristín Jónsdóttir (Haukar)
  4. umferð – Kiana Johnson (Valur)
  5. umferð – Emelie Sofie Hesseldal (Skallagrímur)
  6. umferð – Sanja Orazovic (KR)
Fréttir
- Auglýsing -