Lykill: Madison Sutton

Lykilleikmaður 21. umferðar Bónus deildar kvenna var leikmaður Tindastóls Madison Sutton.

Madison Sutton átti hreint út sagt stórkostlegan leik fyrir Tindastól gegn Ármanni þar sem hún var framlagshæst allra með 41 framlagspunkt. Hún skoraði 28 stig og nýtti skotin sín vel, þar af setti hún niður 10 af 18 tveggja stiga skotum sínum og var með fullkomna 100% nýtingu á vítalínunni þar sem öll 8 vítaskotin fóru niður. Madison drottnaði í teignum og tók samtals 16 fráköst (6 sóknarfráköst og 10 varnarfráköst), auk þess sem hún gaf 5 stoðsendingar, stal 4 boltum og fiskaði 8 villur á mótherjana á þeim rúmu 31 mínútu sem hún spilaði, en hún endaði leikinn með glæsilega +26 í plús/mínus tölfræði.

Lykilleikmenn:

  1. umferð – Rebekka Rut Steingrímsdóttir / KR
  2. umferð – Thelma Dís Ágústsdóttir / Keflavík
  3. umferð – Þóranna Kika Hodge Carr / Valur
  4. umferð – Rebekka Rut Steingrímsdóttir / KR
  5. umferð – Shaiquel Mcgruder / Stjarnan
  6. umferð – Paulina Hersler / Njarðvík
  7. umferð – Diljá Ögn Lárusdóttir / Stjarnan
  8. umferð – Madison Sutton / Tindastóll
  9. umferð – Amandine Justine Toi / Haukar
  10. umferð – Danielle Rodriguez / Njarðvík
  11. umferð – Brittany Dinkins / Njarðvík
  12. umferð – Marta Hermida / Tindastóll
  13. umferð – Abby Beeman / Grindavík
  14. umferð – Abby Beeman / Grindavík
  15. umferð – Brittany Dinkins / Njarðvík
  16. umferð – Molly Kaiser / KR
  17. umferð – Alyssa Cerino / Valur
  18. umferð – Sara Rún Hinriksdóttir / Keflavík
  19. umferð – Kylie Savannah / Ármann
  20. umferð – Jadakiss Guinn / Hamar-Þór
  21. umferð – Madison Sutton / Tindastóll
Fréttir
- Auglýsing -