Lykilleikmaður 19. umferðar Bónus deildar kvenna var leikmaður Ármanns Kylie Savannah Kornegay-Lucas.
Í gífurlega sterkum og mikilvægum sigri nýliða Ármanns gegn Keflavík í Laugardalshöllinni var Kylie besti leikmaður vallarins. Á rúmum 38 mínútum spiluðum skilaði hún 22 stigum, 18 fráköstum, 7 stoðsendingum, 4 stolnum boltum og 3 vörðum skotum. Þá var hún nokkuð skilvirk, með aðeins einn tapaðan bolta, 60% skotnýtingu og 46 framlagsstig fyrir frammistöðuna.

Lykilleikmenn:
- umferð – Rebekka Rut Steingrímsdóttir / KR
- umferð – Thelma Dís Ágústsdóttir / Keflavík
- umferð – Þóranna Kika Hodge Carr / Valur
- umferð – Rebekka Rut Steingrímsdóttir / KR
- umferð – Shaiquel Mcgruder / Stjarnan
- umferð – Paulina Hersler / Njarðvík
- umferð – Diljá Ögn Lárusdóttir / Stjarnan
- umferð – Madison Sutton / Tindastóll
- umferð – Amandine Justine Toi / Haukar
- umferð – Danielle Rodriguez / Njarðvík
- umferð – Brittany Dinkins / Njarðvík
- umferð – Marta Hermida / Tindastóll
- umferð – Abby Beeman / Grindavík
- umferð – Abby Beeman / Grindavík
- umferð – Brittany Dinkins / Njarðvík
- umferð – Molly Kaiser / KR
- umferð – Alyssa Cerino / Valur
- umferð – Sara Rún Hinriksdóttir / Keflavík
- umferð – Kylie Savannah / Ármann





