spot_img

Lykill: KJ Doucet

Lykilleikmaður 16. umferðar Bónus deildar karla var leikmaður KR Kenneth Jamar Doucet JR.

Í nokkuð öruggum sigri KR á ÍA á Akranesi var KJ besti leikmaður vallarins. Lék tæpa 31 mínútu og skilaði 30 stigum, 12 fráköstum, 3 stoðsendingum og stolnum bolta. Þá var hann nokkuð skilvirkur í leiknum, með aðeins tvo tapaða bolta, 10 af 11 af vítalínunni, 9 fiskaðar villur og 38 framlagsstig fyrir frammistöðuna.

Lykilleikmenn Bónus deild karla

  1. umferð – Jordan Semple / Grindavík
  2. umferð – Khalil Shabazz / Grindavík
  3. umferð – Brandon Averette / Njarðvík
  4. umferð – Kári Jónsson / Valur
  5. umferð – Haukur Helgi Briem Pálsson / Álftanes
  6. umferð – Sigurður Pétursson / Álftanes
  7. umferð – Taiwo Badmus / Tindastóll
  8. umferð – Egor Koulechov / Keflavík
  9. umferð – Kristófer Acox / Valur
  10. umferð – Þórir Guðmundur Þorbjarnarson / KR
  11. umferð – Craig Edward Moller / Keflavík
  12. umferð – Seth Christian LeDay
  13. umferð – Tómas Orri Hjálmarsson / ÍR
  14. umferð – Dominykas Milka / Njarðvík
  15. umferð – Þórir Guðmundur Þorbjarnarson / KR
  16. umferð – KJ Doucet / KR
Fréttir
- Auglýsing -