spot_img

Lykill: Khalil Shabazz

Lykilleikmaður 2. umferðar Bónus deildar karla var leikmaður Grindavíkur Khalil Shabazz.

Í nokkuð öruggum sigri Grindavíkur gegn ÍA í Grindavík var Khalil besti leikmaður vallarins. Á rúmum 30 mínútum spiluðum skilaði hann 40 stigum, 2 fráköstum, 7 stoðsendingum og 5 stolnum boltum. Þá var hann nokkuð skilvirkur í leiknum, með aðeins tvo tapaða bolta, 38% þriggja stiga nýtingu og 34 framlagsstig fyrir frammistöðuna.

Lykilleikmenn Bónus deild karla

  1. umferð – Jordan Semple / Grindavík
  2. umferð – Khalil Shabazz / Grindavík
Fréttir
- Auglýsing -